Eiður Smári Guðjohnsen hefur mikla trú á Wayne Rooney sem gekk í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Everton frá Manchester United í dag. Eiður skrifaði færslu þess efnis á Twitter-síðu sína í dag.
„Ég get ekki verið sá eini sem vonar að Wayne Rooney sýni að hann er enn sá besti!?“ skrifaði Eiður í færslunni sem sjá má hér að neðan.
Surely i'm not the only one that wants @WayneRooney to show everybody he's still the best!?
— Eidur Gudjohnsen (@Eidur22Official) July 9, 2017