Dagný Brynjarsdóttir spilaði fyrri hálfleikinn í 2:0-heimasigri Portland Thorns á Houston Dash í bandarísku deildinni í knattspyrnu í nótt. Portland hefur nú unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni og er liðið í öðru sæti, fimm stigum á eftir North Carolina Courage.
Portland komst í 1:0 með marki frá Lindsey Horan eftir 14 mínútur. Dagný fékk gult spjald á 32. mínútu og var hún tekin af velli í hálfleik. Danska landsliðskonan Nadia Nadim kom inn á í hennar stað.
Amandine Henry skoraði annað mark Portland á 49. mínútu og þar við sat.