María Þórisdóttir var í dag kynnt til leiks sem leikmaður Chelsea á Englandi, en hún var keypt til félagsins frá Klepp í Noregi.
Hin 24 ára gamla María, sem er dóttir Þóris Hergeirssonar landsliðsþjálfara kvennaliðs Noregs í handknattleik, skrifaði undir tveggja ára samning við Chelsea. Hún mun spila með liðsfélaga sínum í norska landsliðinu, Maren Mjelde, í bláu treyjunni.
„Ég er mjög stolt af því að vera orðin hluti af Chelsea. Þetta er draumur að rætast og ég hlakka mikið til að kynnast öllum stelpunum og kynnast liðinu. Þetta var auðveld ákvörðun,“ sagði María á heimasíðu Chelsea og var svo beðin um að lýsa sér sem leikmanni.
„Ég er eins og víkingur, ég vil fara ákveðin í einvígi og er dugleg að vinna boltann í loftinu,“ sagði María. Hún á 16 A-landsleiki fyrir Noreg og kom sá fyrsti gegn Íslandi á Algarve-mótinu í mars árið 2015.
María fetar þar með í fótspor Eddu Garðarsdóttur og Ólínu G. Viðarsdóttur, sem voru á mála hjá Chelsea í hálft ár árið 2013. Chelsea er ríkjandi Englandsmeistari í knattspyrnu kvenna og hefur landað titlinum tvisvar.
Nýtt tímabil hefst undir lok mánaðarins og þá er Chelsea komið í 32ja liða úrslit Meistaradeildarinnar og mætir þar Bayern München frá Þýskalandi.