Eftir fernuna sem Lionel Messi skoraði í 6:1-sigri á Eibar í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöld hefur hann nú náð merkilegum áfanga á Nou Camp, heimavelli Börsunga.
Argentínumaðurinn hefur nú skorað 301 mark á heimavelli Barcelona á 13 ára ferli sínum með liðinu. Alls hefur hann skorað 519 mörk í 591 leik með aðalliði Barcelona á ferlinum.
Messi hefur nú þegar skorað níu mörk í fyrstu fimm leikjum deildarinnar en næstur á eftir honum kemur Simone Zaza hjá Valencia með fjögur mörk.