Frönsku meistararnir í Mónakó jöfnuðu Paris SG að stigum í toppsæti frönsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í kvöld.
Mónakó sótti Lille heim og vann stórsigur, 4:0. Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao var á skotskónum en framherjinn skæði skoraði tvö mörk og þeir Stevan Jovetic Rachid Ghezzal gerðu sitt markið hvor. Falcao hefur heldur betur verið iðinn við kolann á tímabilinu en hann hefur skorað 11 mörk í fyrstu sjö leikjunum.
Mónakó og París SG eru með 18 stig í toppsæti deildarinnar en Paris SG á leik til góða gegn Montpellier á morgun.