Valencia setti um helgina félagsmet þegar liðið vann áttunda leik sinn í röð í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Valencia vann þá Espanyol 2:0 og heldur pressu á toppliði Barcelona. Valencia er í öðru sæti með 30 stig eftir 12 leiki en Barcelona er á toppnum með 34 stig.
Valencia og Barcelona mætast einmitt um næstu helgi og geta því bætt metið enn frekar eða tapað í fyrsta sinn á tímabilinu, en liðið gerði þrjú jafntefli í röð áður en sigurgangan hófst.