Albert fer ekki í bann fyrir rauða spjaldið

Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.

Albert Guðmundsson, fyrirliði 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, fer ekki í leikbann þrátt fyrir að hafa fengið rauða spjaldið í uppbótartíma í leik með Jong PSV gegn Fortuna Sittard í hollensku B-deildinni í gærkvöld.

Albert fékk spjaldið þegar dómarinn taldi að hann hefði slegið mótherja. Aganefnd hollenska knattspyrnusambandsins skoðaði atvikið í dag og ákvað í kjölfarið að ekki hefði verið nein ástæða til að lyfta rauða spjaldinu, sem fyrir vikið verður strikað út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert