Cristiano Ronaldo skoraði þrennu og lagði upp eitt mark þegar Real Madrid komst upp í þriðja sæti spænsku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla með 5:2-sigri sínum gegn Real Sociedad í 23. umferð deildarinnar í dag.
Það voru Lucas Vazquez og Toni Kroos sem skoruðu síðan sitt markið hvor fyrir Real Madrid. Jon Bautista og Asier Illarramendi klóruðu hins vegar í bakkann fyrir Real Sociedad.
Real Madrid hefur 42 stig eftir þennan sigur, en liðið er tíu stigum á eftir nágrönnum sínum Atlético Madrid sem er sæti ofar og sextán stigum á eftir Barcelona, forystusauði deildarinnar.