Landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason skoraði eitt mark í 2:1 sigri rússneska knattspyrnuliðsins Rostov á norska liðinu Álasundi í æfingaleik liðanna á Spáni.
Rostov býr sig þessa dagana undir áframhaldandi keppni í rússnesku úrvalsdeildinni sem hefst á nýjan leik í byrjun mars eftir frí.
Daníel Leó Grétarsson, leikmaður Álasunds, fiskaði vítaspyrnu fyrir liðið undir lok leiks. Adam Örn Arnarson, Hólmbert Aron Friðjónsson og Aron Elís Þrándarson eru einnig á mála hjá norska liðinu.
Mark Sverris er á mínútu 02:40 og vítaspyrnudómurinn á mínútu 05:00.
Rostov, með þá Sverri, Björn Bergmann Sigurðarson og Ragnar Sigurðsson innan borðs, mætir Krasnodar í rússnesku úrvalsdeildinni 3. mars.