Knattspyrnumaðurinn Aron Sigurðarson er á leið frá norska liðinu Tromsö til norska liðsins Start en félögin hafa komist að samkomulagi um félagaskiptin.
Aron kom til Tromsö frá Fjölni árið 2016. Hann kom við sögu í 21 leik með Tromsö í norsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim 3 mörk. Hann er 25 ára gamall sem hefur spilað 6 A-landsleiki og hefur skorað í þeim 2 mörk.
„Aron hefur ekki haft áhuga á að skrifa undir nýjan samning. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og ef við ætlum að fá eitthvað fyrir hann þá verðum við að selja hann núna,“ segir Svein-Morten Johansen íþróttastjóri Tromsö við norska blaðið Verdens Gang.
„Ég ætla að líta í kringum mig og sjá hvernig málin þróast. Ég hef rætt við forráðamenn félagsins um mín mál þar sem ég tjáði þeim að ég yrði að fá að spila. Það má því segja að staðan sé óviss hjá mér sem stendur. Þegar nýi þjálfarinn tók við liðinu fékk ég mjög lítið að spila. Hann breytti um kerfi og spilaði með fimm manna vörn og enga kantmenn og þar að leiðandi fékk ég fá tækifæri,“ sagði Aron í samtali við mbl.is í nóvember.
Hjá Start, sem er nýliði í norsku úrvalsdeildinni, hittir Aron fyrir tvo landa sína en sóknarmennirnir Kristján Flóki Finnbogason og Guðmundur Andri Tryggvason leika með liðinu.