Pepe Reina fer til AC Milan

Pepe Reina.
Pepe Reina. AFP

Spænski markvörðurinn Pepe Reina, leikmaður ítalska liðsins Napoli, hefur samþykkt að ganga í raðir AC Milan eftir tímabilið.

Samningur Reina við Napoli rennur út í sumar en fregnir frá Ítalíu herma að hann hafi gert samkomulagi við AC Milan um að ganga til liðs við Mílanóliðið í sumar.

Reina, sem er 35 ára gamall, hefur leikið með Napoli frá árinu 2015 en þar áður lék hann með liðum eins og Barcelona, Villareal, Liverpool og Bayern München.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert