Hjólhestaspyrnumark Cristiano Ronaldo, sem hann skoraði fyrir Real Madrid gegn Juventus í Meistaradeildinni í gærkvöld, hefur vakið mikið umtal enda var mark Portúgalans glæsilegt.
Sjálfur sagði Ronaldo eftir leikinn að þetta sé fallegasta markið sem hann hefur skorað á ferlinum.
Margir muna eftir marki Eiðs Smára Guðjohnsen sem hann skoraði fyrir Chelsea í leik á móti Leeds United í ensku úrvalsdeildinni árið 2003. Á meðfylgjandi myndskeiðum má sjá mörk Eiðs Smára og Cristiano Ronaldo og svo getur fólk dæmt um hvort sé fallegra!