Loris Karius, markvörður Liverpool, upplifði hræðilega atburði í kvöld sem vafalítið munu setja svip á hans framgang í knattspyrnunni. Gerði hann tvívegis slæm mistök í 3:1 sigri Real Madrid á Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
„Ég skil ekki hvað gerðist. Ég finn til með liðsfélögum mínum að tapa úrslitaleiknum. Þeir reyndu að hughreysta mig í búningsklefanum en mér leið afskaplega illa þrátt fyrir það,“ ef haft eftir Karius á vef Knattspyrnusambands Evrópu.