Leikmenn Evrópumeistara Real Madrid kenna Gareth Bale um þá ákvörðun Zinedine Zidane að yfirgefa félagið en Zidane boðaði óvænt til fréttamannafundar í gær þar sem hann tilkynnti að hann væri hættur þjálfun liðsins.
Ummæli Bale eftir sigurleikinn á móti Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar um síðustu helgi fóru ekki vel í liðsfélaga hans. Þar sagði Bale að hann yrði að fá að spila reglulega en Wales-verjinn mátti sætta sig við að sitja töluvert á varamannabekknum á nýafstöðnu tímabili.
Bale hóf úrslitaleikinn á bekknum en kom inn á eftir klukkutíma og reyndist hetja Madridarliðsins en hann skoraði tvö mörk í 3:1 sigri liðsins.
Eftir að Zidane tilkynnti um ákvörðun sína hafa allir leikmenn Real Madrid að undanskildum Bale sent honum kveðjur á samfélagsmiðlum.