Í gær varð ljóst að þýski knattspyrnumaðurinn Mesut Özil, einn af heimsmeisturum Þjóðverja frá 2014 og leikmaður Arsenal, kveðst ekki lengur hafa áhuga á að spila fyrir hönd Þýskalands.
Í yfirlýsingu frá leikmanninum, sem er aðeins 29 ára, sagði m.a. að sú meðferð sem hann hefði fengið frá þýska knattspyrnusambandinu sem og stuðningsmönnum varð til þess að hann langaði ekki lengur til að klæðast landsliðstreyjunni.
Özil er ættaður frá Tyrklandi en fæddur og uppalinn í Þýskalandi og segir hann kynþáttafordóma og vanvirðingu hafa leitt til ákvörðunarinnar. „Ég er þýskur þegar við vinnum en innflytjandi þegar við töpum,“ sagði Özil meðal annars.
„Er þetta vegna Tyrklands eða vegna þess að ég er múslimi?“ heldur Özil áfram en í Þýskalandi búa um þrjár milljónir manns sem rekja ættir sínar til Tyrklands.
Forráðamenn þýska knattspyrnusambandsins eiga enn eftir að tjá sig um málið.