Íslenskur dómarakvartett mun halda um taumana á leik The New Saints (TNS) frá Wales og Lincoln Red Imps frá Gíbraltar í Evrópudeildinni. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna í 2. umferð forkeppninnar og fer leikurinn fram á heimavelli velska liðsins 26. júlí.
Þorvaldur Árnason verður dómari leiksins, aðstoðardómarar verða þeir Jóhann Guðmundsson og Birkir Sigurðarson, og varadómari verður Þóroddur Hjaltalín.