Higuaín lánaður til AC Milan

Higuaín spilaði með Argentínu á HM í Rússlandi.
Higuaín spilaði með Argentínu á HM í Rússlandi. AFP

Argentínski framherjinn Gonzalo Higuaín hefur samþykkt að ganga í raðir AC Milan á lánssamningi sem gildir út leiktíðina. Milan borgar Juventus um 20 milljónir evra fyrir og hefur svo forkaupsrétt að lánssamningi loknum.

Milan getur keypt Higuaín á 36 milljónir evra næsta sumar. Félögin eru að skipta á fleiri leikmönnum því Leonardo Bonucci er að fara til Juventus á ný á meðan Mattia Caldara fer í hina áttina. 

Higuaín þótti líklegur til að ganga í raðir Chelsea og koma í stað Alvaro Morata sem hefur ekki náð sér á strik, en nú er ljóst að ekkert verður úr því. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert