Dregið var í 32 liða úrslit Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu í Nyon í Sviss í dag. Íslandsmeistarar Þórs/KA drógust gegn Þýskalandsmeisturum Wolfsburg en Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, leikur með liðinu. Wolfsburg lék til úrslita í Meistaradeildinni í vor en tapaði fyrir Lyon í framlengdum leik, 4:1, í Kiev.
Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í Rosengård mæta rússneska liðinu Ryazan-VDV og þá mætir Lillestrøm, sem Sigríður Lára Garðasdóttir gekk til liðs við í vikunni, liði Zvezda-2005 frá Rússlandi.
María Þórisdóttir og Chelsea mæta svo SFK 2000 frá Bosníu en dráttinn í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.
Honka - FC Zürich
Fiorentina - Fortuna Hjørring
Ajax - Sparta Praha
Avaldsnes - Lyon
Ryazan-VDV - FC Rosengård
Juventus - Brøndby
SFK 2000 Sarajevo - Chelsea
Atlético Madrid - Manchester City
Þór/KA - Wolfsburg
Gintra Universitetas - Slavia Praha
BIIK-Kazygurt - Barcelona
Somatio Barcelona FA - Glasgow City
ŽFK Spartak - Bayern München
St. Pölten - Paris Saint-Germain
WFC Kharkiv - Linköping
LSK Kvinner - Zvezda-2005