Bayern München og Augsburg gerðu í kvöld 1:1-jafntefli í efstu deild Þýskalands í fótbolta á Allianz-vellinum í München. Staðan var markalaus í hálfleik, en á þriðju mínútu síðari hálfleiks skoraði Arjen Robgen fyrir Bayern. Felix Götze jafnaði hins vegar skömmu fyrir leikslok og þar við sat.
Þrátt fyrir úrslitin er Bayern enn á toppi deildarinnar með 13 stig, en Augsburg er í tólfta sætinu með fimm stig. Alfreð Finnbogason lék ekki með Augsburg vegna meiðsla.