Alfreð Finnbogason hélt áfram góðu gengi sínu fyrir framan mark andstæðinganna er hann skoraði fyrra mark Augsburg í 2:2-jafntefli við Nürnberg á heimavelli í þýsku A-deildinni í fótbolta í dag. Alfreð lék allan leikinn og kom markið hans á elleftu mínútu.
Alfreð er búinn að skora sex mörk í aðeins fimm leikjum síðan hann jafnaði sig á meiðslum í lok september og er hann aðeins búinn að skora tveimur minna en markahæstu leikmenn deildarinnar, þrátt fyrir fjarveru í byrjun tímabils.
Augsburg er í níunda sæti deildarinnar með 13 stig. Dortmund er í toppsætinu með 24 stig eftir 1:0-útisigur á Wolfsburg. Bayern München er þar fjórum stigum á eftir. Bayern gerði 1:1-jafntefli við Freiburg á heimavelli í dag.