Real Madríd vann góðan 2:0-heimasigur á Sevilla í spænsku A-deildinni í fótbolta í dag. Með sigrinum fór Real upp fyrir Sevilla og upp í þriðja sæti deildarinnar.
Staðan eftir jafnan fyrri hálfleik var markalaus, en Real komst yfir á 78. mínútu er Brasilíumaðurinn Casmiero skoraði. Luka Modric gulltryggði svo 2:0-sigur með marki í uppbótartíma.
Real er nú sjö stigum á eftir Barcelona, en Barcelona á leik til góða og getur náð tíu stiga forskoti á erkifjendur sína.