Messi og Bale byrja á bekknum

Lionel Messi.
Lionel Messi. AFP

Lionel Messi hefur leik á varamannabekknum hjá Barcelona sem tekur á móti erkifjendum sínum í Real Madrid í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

Messi varð fyrir meiðslum í leiknum gegn Valencia um síðustu helgi og ríkti óvissa um það hvort hann gæti verið með í kvöld. Þá vekur það athygli að Gareth Bale er á varamannabekknum hjá Evrópumeisturum Real Madrid.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert