Sveinn Aron Guðjohnsen opnaði markareikning sinn á Ítalíu þegar hann skoraði þriðja mark Ravenna í 3:0 sigri liðsins gegn Alma Juventus Fano í ítölsku C-deildinni í knattspyrnu í gær.
Sveinn Aron, sem er í láni hjá Ravenna frá B-deildarliðinu Spezia, kom inn á á 66. mínútu og skoraði síðasta markið á 89. mínútu og skoraði með góðu skoti eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði sem kemur eftir 2:20 mínútur í spilaranum.