Kristrún frá Roma til Noregs

Kristrún Rut Antonsdóttir í búningi Selfoss.
Kristrún Rut Antonsdóttir í búningi Selfoss. mbl.is/Guðmundur Karl

Kristrún Antonsdóttir hefur gengið í raðir norska úrvalsdeildarfélagsins Avaldsnes, en hún kemur þaðan frá ítalska félaginu Roma.

Kristrún spilaði með B-deild­arliði Chieti á síðustu leiktíð þar sem hún skoraði 5 mörk í 17 leikj­um. Hún spilaði svo átta leiki með Selfossi í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði eitt mark, áður en hún fór til Roma síðsumars.

Kristrún kom við sögu í fimm leikjum hjá Roma og kveður liðið í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar. Tvær umferðir eru búnar af norsku úrvalsdeildinni og hefur Avaldsnes eitt stig að þeim loknum.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka