FC Astana í Kasakstan hefur staðfest á heimasíðu sinni að það hafi gengið frá kaupum á landsliðsmanninum Rúnari Má Sigurjónssyni en eins og kom fram í frétt á mbl.is í morgun greindu þarlendir fjölmiðlar frá því að félagið væri að ganga frá kaupunum.
Rúnar Már, sem heldur upp á 29 ára afmælisdag sinn á morgun, fer til Astana frá svissneska liðinu Grasshoppers sem hann hefur leikið með undanfarin þrjú ár.
Astana er í toppsætinu í deildinni í Kasakstan, með þriggja stiga forystu, en deildin þar er hálfnuð þar sem keppnistímabilið í landinu hefst í mars. Liðið hefur fimm sinnum hampað meistaratitlinum og þrisvar sinnum bikarmeistaratitlinum frá því það var stofnað fyrir tíu árum.
FC Astana verður á meðal þátttakenda í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Þar hefur liðið leikið síðustu árin og komst í riðlakeppnina árið 2016.
Полузащитник сборной Исландии подписал контракт с «Астаной»
— Astana FC (@fc_astana) June 17, 2019
подробнее на https://t.co/cOQKGAxhkh pic.twitter.com/6TWCMnplWT