Fullkomin þrenna hjá Rondon (myndskeið)

Salomon Rondon.
Salomon Rondon. AFP

Salomon Rondon skoraði fullkomna þrennu þegar Venesúela hafði betur gegn Japan 4:1 í vináttuleik sem fram fór í Japan í dag.

Rondon, fyrrverandi leikmaður ensku liðanna WBA og Newcastle og núverandi leikmaður kínverska liðsins Dalian Yiafang, skoraði þrjú fyrstu mörk sinna manna á 25 mínútna kafla.


Hann skoraði fyrsta markið með skalla, annað markið með vinstri fæti og það þriðja með hægri fæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert