Aron gerir grín að þrálátum meiðslum

Aron Jóhannsson hefur lítið spilað síðustu ár.
Aron Jóhannsson hefur lítið spilað síðustu ár.

Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson hefur mikið glímt við meiðsli síðustu ár, en hann hefur aðeins leikið samtals 40 leiki á síðustu fimm árum. Þess má geta að 38 leikir eru á hverju tímabili í ensku úrvalsdeildinni. 

Sóknarmaðurinn sér spauglegu hliðina af meiðslunum, eins og hann sýndi í Twitter-færslu í gær, þar sem hann ber sjálfan sig í dag saman við sig fyrir tíu árum. 

Aron gekk í raðir Hammarby í Svíþjóð frá Werder Bremen í Þýskalandi fyrr á árinu og hefur framherjinn leikið tíu leiki með sænska liðinu.

Þessa spauglegu Twitter-færslu má sjá hér fyrir neðan.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka