Aron Jóhannsson var í lykilhlutverki hjá Hammarby í gærkvöld þegar lið hans vann Varberg, 5:1, í 32-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Hann skoraði fyrsta mark leiksins á 19. mínútu, lagði upp þriðja mark Stokkhólmsliðsins á 52. mínútu og skoraði síðan sitt annað mark þegar hann kom Hammarby í 4:0 á 57. mínútu. Honum var síðan skipt af velli á 79. mínútu.
Mörkin og og stoðsendinguna má sjá hér fyrir neðan.