Jean-Michel Aulas, forseti franska knattspyrnufélagsins Lyon, kveðst hafa fengið staðfesta dagsetningu fyrir seinni leik liðsins gegn Juventus í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem fram átti að fara í mars en var frestað vegna kórónuveirunnar.
Aulas sagði í viðtali við RTL í Þýskalandi að hann hefði fengið staðfest að leikurinn færi fram 7. ágúst og leikið yrði án áhorfenda í Tórínó.
UEFA hefur hins vegar ekkert gefið út og sagði síðast í dag á vef sínum að dagsetningar í Meistaradeildinni lægju ekki endanlega fyrir.
Lyon vann fyrri leik liðanna á sínum heimavelli, 1:0, þann 26. febrúar með marki frá Lucas Tousart en leikið var frammi fyrir 57 þúsund áhorfendum í Lyon. Seinni leikurinn átti að fara fram í Tórínó 17. mars en þá var búið að fresta öllum leikjum.
Þremur öðrum einvígjum sextán liða úrslitanna er ólokið, Barcelona - Napoli, Manchester City - Real Madrid og Bayern München - Chelsea. Hins vegar eru París SG, Atlético Madrid, RB Leipzig og Atalanta komin í átta liða úrslit.