Hólmar á leið til Þrándheims á ný

Hólmar Örn Eyjólfsson á æfingu með landsliðinu fyrir leikina gegn …
Hólmar Örn Eyjólfsson á æfingu með landsliðinu fyrir leikina gegn Englandi og Belgíu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hólmar Örn Eyjólfsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er að öllu óbreyttu á leið til norska félagsins Rosenborg á nýjan leik en hann hefur leikið undanfarin þrjú tímabil með Levski Sofia í Búlgaríu.

Þetta kemur fram á 433.is í dag og mbl.is hefur staðfestar heimildir fyrir því að Hólmar gæti verið orðinn leikmaður Rosenborg um helgina.

Hólmar lék með Rosenborg frá 2014 til 2016 og vann norska meistaratitilinn tvisvar með liðinu. Þrándheimsliðið er nú í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar þegar 17 umferðir af 30 hafa verið leiknar á þessu tímabili.

Þá er Rosenborg í þann veginn að tryggja sér sæti í 3. umferð Evrópudeildarinnar en liðið er með örugga forystu gegn Ventspils í Lettlandi, 5:1, þegar skammt er til leiksloka í viðureign liðanna sem nú stendur yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert