Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, er á leið til úkraínska úrvalsdeildarfélagsins Lviv.
Það eru danskir fjölmiðlar sem greina frá þessu í dag en Ragnar, sem verður 35 ára gamall í júní, er samningsbundinn FC Kaupmannahöfn í Danmörku.
Ragnar hefur ekki átt fast sæti í liði FCK á tímabilinu og hefur hann einungis komið við sögu í fjórum leikjum með liðinu á tímabilinu.
Lviv er í næt neðsta sæti úrvalsdeildarinnar með 8 stig og er með einu stigi meira en Dnipro-1, botnlið deildarinnar.
Lviv er nýliði í efstu deild Úkraínu en Ragnar hefur einnig leikið í Rússlandi, Svíþjóð og á Englandi á atvinnumannaferli sínum.
Hann er á meðal reynslumestu leikmanna íslenska karlalandsliðsins frá upphafi og á að baki 97 A-landsleiki þar sem hann hefur skorað fimm mörk.