Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í knattspyrnu, er með kórónuveiruna.
Félag Heimis í Katar, Al-Arabi, segir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum í dag. Kemur þar fram að Heimir sé með veiruna og að hann verði því ekki á hliðarlínunni í næstu leikjum liðsins. Er honum jafnframt óskað skjóts bata en ekki liggur fyrir hvort hann hafi mikil einkenni.
Vel hefur gengið hjá Heimi og lærisveinum hans, liðið er taplaust í síðustu átta leikjum sínum og situr í 6. sæti í katörsku efstu deildinni. Freyr Alexandersson er aðstoðarmaður Heimis og stýrir eflaust liðinu í fjarveru hans. Þá er landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hjá liðinu.
أكدت الفحوصات إصابة مدرب الفريق هيمير هالجريمسون بفايروس كورونا وبذلك سيغيب عن الفريق في الفترة القادمة
— Al-Arabi Sports Club (@alarabi_club) February 18, 2021
وتمنياتنا للمدرب بالشفاء العاجل pic.twitter.com/9LFOiwFMCL