Búið að draga í undankeppni EM 2022

U17 ára lið kvenna sem komst í milliriðil EM 2020.
U17 ára lið kvenna sem komst í milliriðil EM 2020.

Dregið hefur verið í undankeppni EM 2022 hjá U17-ára landsliði kvenna. Ísland dróst í riðil með Norður-Írlandi, Serbíu og Spáni.

Fyrirkomulagi keppninnar hefur verið breytt og er leikið með sama fyrirkomulagi og í Þjóðadeild UEFA. Tvær deildir eru í keppninni og er Ísland í A-deild.

Undankeppnin er eins og áður í tveimur hlutum, en það lið sem endar í neðsta sæti síns riðils í A-deild fellur niður í B-deild fyrir næsta hluta undankeppninnar. Þau sex lið sem vinna sína riðla í B deild komast upp í stað þeirra ásamt því liði í þeirri deild sem er með bestan árangur í öðru sæti.

Fyrsti hluti keppninnar verður leikinn á tímabilinu 1. ágúst til 14. nóvember, en ekki er ljóst að svo stöddu hvar riðill Íslands verður leikinn.

Þær sjö þjóðir sem vinna sína riðla í A-deild í öðrum hluta undankeppninnar vinna sér inn sæti í lokakeppni EM 2022, en hún verður haldin í Bosníu og Hersegóvínu 3. -15. maí á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert