Zlatan Ibrahimovic heldur áfram að undirbúa sig fyrir lífið eftir fótboltann en eftir að hafa tekið þátt í tónlistarhátíð í mars hefur hann nú opinberað að hann muni leika í kvikmynd.
Zlatan, sem er 39 ára gamall Svíi og leikur með AC Milan, kom fram ásamt Sinisa Mihajlovic, þjálfara Bologna, á tónlistarhátíðinni í Sanremo á Ítalíu.
Fréttastofa Reuters skýrir nú frá því að með því að birta mynd af sér á Instagram með nafninu „Antivirus“ sé Zlatan búinn að staðfesta að hann muni leika í nýrri kvikmynd um Ástrík og Steinrík, Silkivegurinn, sem Guillaume Canet leikstýrir og á að koma út á næsta ári. Antivirus er sagt vera nafnið á persónunni sem Zlatan leiki í myndinni.
Caius Antivirus er rómverskur hershöfðingi sem kemur við sögu í fleiri Ástríksbókum og myndum en Ástríkur og Steinríkur eru erkifjendur Rómverja í bókunum og leika þá grátt hvað eftir annað.