Tomas Holes var hetja tékkneska liðsins Slavia Prag þegar hann skoraði jöfnunarmark á þriðju mínútu uppbótartíma gegn Arsenal á Emirates-vellinum í Lundúnum í gærkvöldi.
Holes býst við erfiðum síðari leik í Prag og bendir réttilega á að markalaust jafntefli dugi Slavia í honum vegna útivallarmarksins sem hann skoraði í 1:1 jafnteflinu í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær.
„Þetta verður annar erfiður leikur. Við verðum að hreyfa okkur og spila betur á vellinum til þess að skapa hættu og það er mikilvægast að halda áfram að byggja á góðum varnarleik.
0:0 er meira að segja nóg fyrir okkur. Því verðum við að vera sterkir varnarlega og ganga úr skugga um að við séum hættulegir þegar við sækjum,“ sagði Holes við heimasíðu Slavia Prag eftir leikinn í gær.
Síðari leikur Slavia Prag og Arsenal fer fram í Prag fimmtudaginn 15. apríl.