Aðstoðardómarinn í bann

Octavian Sovre hefur verið settur í bann eftir að hafa …
Octavian Sovre hefur verið settur í bann eftir að hafa fengið eiginhandaráritun hjá Erling Braut Håland. AFP

Aðstoðardómarinn Octavian Sovre komst í fréttirnar í vikunni þegar hann fékk eiginhandaráritun hjá Erling Braut Håland, sóknarmanni Borussia Dortmund, eftir leik liðsins við Manchester City í Meistaradeild Evrópu. Hann hefur nú verið settur í tímabundið bann frá dómgæslu í heimalandi sínu Rúmeníu vegna athæfisins.

Samkvæmt fregnum frá Rúmeníu hefur Sovre stundað það að safna eiginhandaráritunum frægra fótboltamanna undanfarin fimm ár, sem hann hefur svo selt til styrktar einhverfumiðstöð þar í landi.

Roberto Rosetti, yfirmaður dómaramála hjá UEFA, sagði í vikunni að slíkt athæfi væri óboðlegt fyrir dómara. „Ef þú vilt njóta jafn mikillar virðingar og leikmennirnir, af hverju ættirðu að biðja um eiginhandaráritun frá þeim eða treyjuna þeirra? Biðja þeir um það sama hjá dómurum?

Þetta er einfaldlega óboðlegt, þetta snýst um reisn og ekki gleyma þeim fjölda myndavéla sem eru á öllum leikjum á vegum UEFA, það fer ekkert fram hjá þeim,“ sagði Rosetti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert