Spánarmeistarar Real Madríd verða án nokkurra lykilmanna er þeir mæta erkifjendum sínum í Barcelona í 1. deildinni annað kvöld.
Real staðfesti það í kvöld að belgíski framherjinn Eden Hazard hefur ekki náð sér af meiðslum og er hann því ekki í leikmannahópi liðsins en fyrirliðinn Sergio Ramos og varnarmaðurinn Dani Carvajal voru fyrir á meiðslalistanum.
Staðan hjá Barcelona er öllu betri en þar eru tveir lykilmenn snúnir aftur í liðið, þeir Gerard Piqué og Sergi Roberto. Real Madríd tekur á móti Barcelona í stærstu viðureign spænsku 1. deildarinnar á morgun kl. 19 og það er mikið í húfi. Erkifjendurnir eru nefnilega í harðri baráttu við Atlético Madríd um toppsæti deildarinnar.
Fyrir helgina er Atlético í efsta sæti með 66 stig, Barcelona í öðru með 65 stig og Real í því þriðja með 63 stig.