Danski knattspyrnuþjálfarinn Henrik Pedersen er hættur störfum hjá norska Íslendingaliðinu Strømsgodset en mikið hefur gengið á í kringum hann undanfarnar vikur.
Pedersen hefur verið ítrekað verið ásakaður um kynþáttafordóma gagnvart leikmönnum liðsins og í dag tilkynnti formaður félagsins, Ivar Strømsjordet, að ákveðið hefði verið að leiðir skildi til að koma á ró í kringum félagið.
„Okkur þykir afar leitt að viðskilnaðurinn hafi orðið við svona kringumstæður og við óskum Henrik alls hins besta á sínum þjálfaraferli. Við berum mikla virðingu fyrir því fagmannlega starfi sem hann hefur innt af hendi í félaginu okkar,“ sagði formaðurinn á heimasíðu Strømsgodset.
Pedersen hefur verið þjálfari liðsins frá 2019. Ari Leifsson og Valdimar Þór Ingimundarson, leikmenn 21 árs landsliðs Íslands á EM í síðasta mánuði, leika báðir með Strømsgodset.