Svíþjóð og Bandaríkin mættust í vináttuleik í fótbolta í Stokkhólmi í kvöld og lauk leik liðanna með jafntefli, 1:1.
Lina Hurtig kom Svíþjóð yfir á 38. mínútu en Megan Rapinoe, sem kom inn á sem varamaður á 57. mínútu, jafnaði með marki úr víti á 87. mínútu og þar við sat.
Leikurinn var sá fyrsti sem bandaríska liðinu mistekst að vinna frá 6. október 2019, en liðið vann 16 leiki í röð fyrir leikinn í kvöld.