Arnór lagði upp mark í sigurleik

Arnór Sigurðsson leikur með CSKA.
Arnór Sigurðsson leikur með CSKA. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnór Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu lagði upp fyrra mark CSKA Moskva í dag þegar lið hans sigraði Rotor Volgograd, 2:0, í rússnesku úrvalsdeildinni.

Nígeríski landsliðsmaðurinn Chidera Ejuke skoraði fyrra markið í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Arnóri og José Salomon Rondon, landsliðsmaður Venesúela, bætti við marki á 71. mínútu. Arnóri var skipt af velli á 64. mínútu leiksins.

Hörður Björgvin Magnússon leikur ekki með liðinu næstu mánuðina eftir að hafa slitið hásin í fæti á dögunum.

CSKA komst með sigrinum upp í fjórða sætið með 46 stig og náði Lokomotiv Moskva að stigum. Zenit Pétursborg er efst með 54 stig og Spartak Moskva er með 47 stig í öðru sæti. Íslendingaliðið á því mjög raunhæfa möguleika á að krækja í sæti í forkeppni Meistaradeildarinnar fyrir næsta tímabil en liðið í öðru sæti fer þangað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert