Miklar vangaveltur í Þýskalandi

Hans-Dieter Flick gæti tekið við þýska landsliðinu.
Hans-Dieter Flick gæti tekið við þýska landsliðinu. AFP

Miklar vangaveltur eru um framtíð þýska knattspyrnustjórans Hans-Dieter Flick í þýskum fjölmiðlum þessa dagana.

Flick, sem er í dag stjóri Evrópu- og Þýskalandsmeistara Bayern München, hefur verið sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá þýska landsliðinu.

Bild greinir frá því að Flick sé efstur á óskalista þýska knattspyrnusambandsins um að taka við starfinu af Joachim Löw sem ætlar að hætta eftir lokakeppni EM í sumar.

Fari svo að Flick taki við landsliðinu þurfa Bæjarar að finna sér nýjan knattspyrnustjóra og hefur Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, verið orðaður við starfið.

Klopp er samningsbundinn Liverpool til sumarsins 2024 og hefur lítinn áhuga á því að stökkva frá borði á Englandi á þessum tímapunkti.

Flick tók við þjálfun Bayern München af Niko Kovac í nóvember 2019 eftir að Kovac var rekinn en hann gerði liðið að Evrópumeisturum á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert