Karólína fer á mjög sterkt mót

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er leikmaður Bayern München.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er leikmaður Bayern München. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskonan unga í knattspyrnu, tekur þátt í mjög öflugu móti með liði sínu Bayern München áður en næsta keppnistímabil hefst.

Bayern, sem er á góðri leið með að tryggja sér þýska meistaratitilinn, tekur þátt í fjögurra liða móti í Louisville í Bandaríkjunum dagana 15. til 22. ágúst.

Hin þrjú liðin eru París SG, toppliðið í Frakklandi, og tvö bandarísk atvinnulið, Chicago RedStars og Racing Louisville, en síðarnefnda liðið tekur þátt í NWSL-deildinni í fyrsta skipti á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert