Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði tvívegis í leik IFK Gautaborgar og AIK í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Mörkin skoraði Kolbeinn bæði í fyrri hálfleik og tryggði IFK Gautaborg 2:0-sigur.
Mörkin má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.