Þýski knattspyrnumaðurinn Toni Kroos er kominn í einangrun vegna kórónuveirunnar og óvíst er hvort hann spili tvo síðustu leiki Real Madrid í spænsku 1. deildinni.
Real Madrid skýrði frá því í morgun að Kroos hefði verið sendur í einangrun þar sem hann hefði umgengist smitaðan einstakling. Sjálfur hafi hann greinst neikvæður í skimun en þurfi að vera í einangrun þar til allt sé orðið öruggt.
Real Madrid er í slag við granna sína í Atlético Madrid um spænska meistaratitilinn og er tveimur stigum á eftir þeim þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið leikur við Athletic Bilbao á útivelli á sunnudaginn.