Ísak lagði upp sigurmark

Ísak Bergmann Jóhannesson er mikilvægur hlekkur í liði Norrköping þrátt …
Ísak Bergmann Jóhannesson er mikilvægur hlekkur í liði Norrköping þrátt fyrir ungan aldur. Ljósmynd/Norrköping

Ísak Bergmann Jóhannesson lagði upp sigurmark Norrköping þegar liðið vann nauman 1:0-útisigur á Mjällby í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í dag.

Eina mark leiksins kom strax á 4. mínútu þegar Maic Sema skoraði eftir sendingu Ísaks Bergmanns.

Skagamaðurinn ungi lék allan leikinn fyrir Norrköping á vinstri kantinum. Ari Freyr Skúlason lék sömuleiðis allan leikinn á miðju liðsins.

Hinn 16 ára gamli Jóhannes Kristinn Bjarnason var allan tímann á varamannabekknum hjá Norrköping og bíður þolinmóður eftir sínum fyrsta leik.

Norrköping endurheimti þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með sigrinum og er jafnt AIK að stigum, sem er í fjórða sætinu.

Jón Guðni Fjóluson spilaði þá allan leikinn í vörn Hammarby þegar liðið kjöldró Degerfors á heimavelli, 5:1.

Með sigrinum fór Hammarby upp fyrir Degerfors og er nú í 6. sæti, einu stigi fyrir ofan Degerfors sem er í 8. sæti.

Í sænsku B-deildinni lék Böðvar Böðvarsson allan leikinn í vinstri bakverði hjá Helsingborg í naumum 1:0-heimasigri gegn Akropolis.

Helsingborg er í 7. sæti en á hins vegar tvo leiki til góða á flest liðin fyrir ofan sig og getur með sigri í þeim blandað sér af alvöru í toppbaráttuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert