Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hefur Barcelona ekki kynnt Xavi Hernández til sögunnar sem nýjan knattspyrnustjóra enn sem komið er þar sem félagið vilji ekki greiða þá upphæð sem félag hans í Katar, Al-Sadd, vill fá fyrir að gefa hann lausan.
Marca, AS og Mundo Deportivo segja öll í dag að samkvæmt heimildum úr röðum Barcelona vilji félagið ekki greiða fimm milljónir evra sem Katarbúarnir hafi krafist þess að fá fyrir Xavi.
Mundo Deportivo hefur eftir Sergi Barjuan, bráðabirgðastjóra Barcelona, að málið sé ekki í höfn. „Al-Sadd hefur skýrt frá þessu en ekki Barcelona. Við verðum að bíða þess að báðir aðilar séu klárir. Við erum í góðu sambandi," sagði Barjuan.
Samkvæmt því sem Al-Sadd segir á Twitter snýst málið um að Barcelona greiði þá upphæð sem er tilgreind í samningi Xavi við félagsins, sem greiða þurfi til að fá hann lausan frá félaginu. Al-Sadd hefur þegar þakkað Xavi fyrir störf hans hjá félaginu og óskað honum góðs gengis.
„Xavi skýrði okkur fyrir nokkrum dögum frá áhuga sínum á að geta farið til Barcelona á þessum erfiða tíma sem uppeldisfélag hans gengur nú í gegnum. Við skiljum það og ákváðum að standa ekki í vegi hans," segir Turki Al-Ali, framkvæmdastjóri Al-Sadd.