Simon Kjær, fyrirliði danska landsliðsins í knattspyrnu og miðvörður AC Milan, var borinn af velli eftir aðeins fjögurra mínútna leik í kvöld þegar lið hans sótti Genoa heim í ítölsku A-deildinni.
Útlit er fyrir að hann hafi slasast á hné en ekki liggur fyrir enn sem komið er hvort um alvarleg meiðsli sé að ræða.
Kjær er 32 ára gamall og varð í 18. sæti í kjöri France Football á knattspyrnumanni ársins 2021 sem birt var í fyrrakvöld. Hann vakti heimsathygli í sumar fyrir stjórnunarhæfileika sína þegar félagi hans Christian Eriksen hneig niður með hjartastopp í leik Dana og Finna á EM.
AC Milan er með 1:0 forystu í leiknum þegar fyrri hálfleik er að ljúka.