Fékk tækifæri í fyrsta tapleiknum

Ögmundur Kristinsson.
Ögmundur Kristinsson. Ljósmynd/@OlympiakosFr

Ögmundur Kristinsson lék í dag sinn fyrsta leik í marki gríska meistaraliðsins Olympiacos á þessu keppnistímabili þegar það sótti heim B-deildarliðið Levadiakos í sextán liða úrslitum grísku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Ögmundur hefur verið varamarkvörður liðsins í hálft annað ár en tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Tomás Vaclík er aðalmarkvörður Olympiacos. Í dag var Ögmundur á milli stanganna en Olympiacos tapaði óvænt fyrir Levadiakos, 3:2, í sextán liða úrslitum keppninnar.

Lið hans er þó ekki úr leik því leikið er heima og heiman í bikarkeppninni í Grikklandi og Olympiacos fær tækifæri til að rétt sinn hlut í seinni leiknum á sínum heimavelli.

Á síðasta tímabili lék Ögmundur þrjá bikarleiki í marki Olympiacos auk tveggja leikja í grísku deildinni sem liðið vann þá með miklum yfirburðum. 

Ósigurinn í dag er sá fyrsti hjá Olympiacos gegn grísku liði í hálft ár, eða síðan það tapaði 2:1 fyrir PAOK í úrslitaleik bikarsins síðasta vor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert