Á vellinum skilja menn hver annan

Guðmundur Þórarinsson.
Guðmundur Þórarinsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Selfyssingurinn Guðmundur Þórarinsson og samherjar hans í New York City í bandarísku knattspyrnunni eru í spennandi stöðu um þessar mundir.

Liðið er eitt fjögurra sem eftir eru í úrslitakeppninni og þarf að vinna tvo leiki til viðbótar til að verða meistari. Fram undan er úrslitaleikur í Austurdeildinni á sunnudaginn eftir að hafa lagt New England Revolution, lið Arnórs Ingva Traustasonar, að velli eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni.

„Þetta var klikkaður leikur eftir á að hyggja. Þarna mættust tvö hörkulið og kannski má segja að á heildina litið hafi þetta verið tvö bestu liðin í Austurdeildinni ef maður horfir yfir tímabilið þótt auðvitað séu fleiri öflug lið í deildinni. Við náðum í frábæran sigur, sérstaklega þar sem við spiluðum á útivelli. Þetta var frekar kaflaskiptur leikur. Við höfðum yfirhöndina á köflum og þeir höfðu yfirhöndina á köflum. Það voru skoruð tvö mörk í framlengingu og svo endaði þetta í vítaspyrnukeppni. Ég held að áhorfendur hafi ekki getað kvartað undan þessari skemmtun.“

Guðmundur tekur fram að fyrirkomulagið varðandi úrslitakeppnina hjálpi ekki liðinu sem hafnar í efsta sæti sem í þessu tilfelli var New England. Liðið sat yfir í fyrstu umferð og hafði ekki spilað lengi þegar kom að leiknum.

„Þeir rúlluðu yfir deildina og misstu eiginlega aldrei dampinn. Það má alveg gagnrýna hvernig þetta er allt sett upp hérna í Bandaríkjunum. New England þurfti ekki að spila í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og fór beint í aðra umferð. Fyrir þá er ekki létt að fara í leik í úrslitakeppninni eftir að hafa ekki spilað leik í hátt í mánuð. Það er svolítið sérstakt hvernig fyrirkomulagið er. Úrslit síðustu ára sýna að liðið sem hafnar í efsta sæti dettur oft út í fyrsta leik. Það er skiljanlegt því maður veit sjálfur hvernig það er að spila ekki lengi. Þá er ekki heppilegt að fara beint í hraðan leik í útsláttarkeppni.“

„Einhver ára yfir okkur“

Guðmundur segir að þótt leikmenn New York City komi héðan og þaðan úr heiminum þá takist mönnum að skilja hver annan þegar komið er á grasið.

„Ég fer ekki ofan af því að mér finnst við vera með besta liðið. Hópurinn hjá okkur er rosalega blandaður og til dæmis eru margir Suður-Ameríkumenn sem tala litla ensku. Engu að síður er stemningin bara fín í klefanum. Maður reynir einhvern veginn að tengja við menn þótt við tölum ekki sama tungumálið. Það er hálffyndið að hugsa til þess en menn kunna fótbolta og reyna að spila vel saman. Mér finnst vera einhver ára yfir okkur og ég hef trú á því að við getum farið alla leið. Ég fann snemma að við værum með mjög gott lið. Þetta er mjög spennandi staða sem við erum í og þetta eru allt úrslitaleikir.“

Á sunnudagskvöldið mætast Philadelphia Union og New York City. Árangur í deildakeppninni ræður því hverjir fá heimaleik í úrslitakeppninni en Philadelphia hafnaði í öðru sæti í Austurdeildinni en New York í fjórða sæti.

Viðtalið við Guðmund í heild sinni er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert