Stórleikur Bayern München og Barcelona í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla sem fer fram næstkomandi miðvikudag verður spilaður fyrir luktum dyrum vegna aukins fjölda kórónuveirusmita í Bæjaralandi.
Þetta hefur Markus Soder, héraðsstjóri í Bæjaralandi, staðfest.
Engir áhorfendur verða því leyfðir á leiknum, sem skiptir engu máli fyrir Bayern en er gífurlega mikilvægur fyrir Barcelona þar sem liðið þarf helst á sigri að halda til þess að eygja von um að komast upp úr riðlinum og í 16-liða úrslitin.
Vinni Barcelona ekki fer Benfica áfram með sigri á Dynamo Kiev á sama tíma.
Bæjarar unnu fyrri leikinn á Nývangi í Barcelona í september örugglega, 3:0.